4 harðsoðin egg
1 skinkubréf, skorið smátt (200 gr)
8-10 beikon sneiðar
5 kúfaðar msk mæjónes (150 gr)
(ekki nota Bónus mæjónes, það er sojaolía í því)
Vorlaukur (ég notaði 3 stilka)
Aromat og paprikukrydd eftir smekk.
Til að fá beikonið extra crispý og flott er frábært að steikja það í örbylgjunni.
Diskur, tissue, beikonsneiðar (ég setti 4 í einu), tissue ofan á beikonið, og í örbylgjuna á hæsta í 4½-5 mín.
Passaðu þig á að diskurinn verður SJÓÐANDI heitur. Tekur út og tekur af bréfunum og lætur kólna. Svo bara að skera niður eða skella sér í einnota hanska og hreinlega mylja það útí salatið, svo stökkt verður það :)
Uppskriftina fann ég á Lágkolvetnauppskriftir á Facebook
Bakvísun: Hoppið….. | Lífið á Carb Nite