Ég vinn vaktavinnu. Ein vinnusyrpa er 5 dagar og á þeim dögum eru unnar 6 vaktir. Tvisvar í syrpu er hopp á milli vakta, ss af næturvakt yfir á kvöldvakt og af kvöldvakt yfir á dagvakt. Á hoppi eru bara 8 tímar á milli vakta.
Ég var á hoppi í dag sem þýddi að ég kláraði vakt klukkan 8 í morgun, dreif mig heim, svaf og var mætt aftur kl 16 til miðnættis. Á hoppi gengur mér yfirleitt skelfilega að sofa….í dag svaf ég frá 9 til 12:45.
Miðað við að vera ekki byrjuð formlega í hreinsun þá finnst mér að þetta gangi bara fínt :) Þeas að venjast þessu mataræði :) Á örugglega eftir að taka kolvetnafyllerí áður en ég byrja hreinsunina ;)
Þetta borðaði ég í dag:
Klukkan 01:45 (næturvakt)
4 spægipylsusneiðar í 4 ostsneiðum
klukkan 08:30 (fyrir svefn)
Nectar með rjóma + magnesíum og kalk
Klukkan 13:15 (eftir svefn)
Kaffi með rjóma
Klukkan 16:15
½ kjarnalaus gúrka með skinku/beikon salati
Klukkan 18:45 (mötuneyti)
3 litlir ofnsteiktir kjúklingabitar m/skinni, smá sletta af kokteil og 1 kúfuð msk af hrásalati
CLA, omega3+D-vit, og fjölvítamín
Klukkan 21
Skyr.is með rjóma
Klukkan 22:30
Harðfiskbiti með smjöri