…og hann byrjaði á aukavakt, þannig að þessi dagur varð skrítinn í matar og svefntíma, þar sem ég á næturvakt í nótt.
Svaf sl nótt frá kl 0030-0630
Klukkan 0645
Kaffi með rjóma, msk af MCT olíu
Klukkan 1000
Harðfiskur með smjöri
Klukkan 1330
Afgangurinn af Eggjahakkréttinum, uþb 2 sneiðar.
Klukkan 1815
Smá kæfubiti, ein eggjamúffa og slatti af beikoni
(mér finnst beikon svaaaakalega gott)
Lagði mig svo fyrir næturvakt frá 1900-2215
Mun því ekkert borða fram að miðnætti til að vera viss um að trufla ekki cortisolið ;)
(cortisol er hormón sem elskar að setja fitu á kviðsvæðið, þetta hormón er í hámarki 30 mín eftir að maður vaknar en er fallið um 2-3 klst eftir að maður vaknar. Cortisol dregur líka úr meltingargetu. Því er þessi „fasta“ í 2-3 tíma eftir að maður vaknar, til að cortisolið fái ekkert til að næra sig á )
Ég stóð mig ágætlega í vatninu í dag, en gleymdi að taka öll vítamín :/
Drakk einn kaffi í vinnunni með kaffirjóma.
Hann er ööörlítið ríkari í kolvetnum en venjulegur rjómi, en það hentar betur í vinnunni að vera með svona litlar ferðapakkningar.