Hæ :)
Jæja, við hjónin komum heim seinnipartinn í gær úr svakalega skemmtilegri ferð á Höfn. Mágur minn varð fertugur um daginn og haldið uppá það um helgina.
Það var sukkað soldið……mikið ;) Vorum ekkert á gúffinu allan daginn alla dagana, en það var alveg farið í þessa ferð með því að leyfa sér allt.
Framundan er…….tja…..beina línan að mestu. Það er árshátíð hjá vinnunni minni á laugardaginn og við ætlum í hreinsun eftir það. Ekki að missa okkur fram að því heldur.
Hvernig ert þú búin að hafa það ?