….og dagurinn byrjar í vinnunni þegar ég á að vera í fríi…..
aukavaktir eru af hinu góða (amk fyrir launaumslagið hehe)
Ca einu sinni á önn er sofið yfir sig heima hjá mér…….þetta einu sinni á þessari önn var í morgun ! Þegar ég kom heim kl 0830 voru allir sofandi…..þannig að það var rokið til og allir reknir framúr á öðru hundraðinu og syfjan mín eiginlega hvarf við þennan æsing :/
Þurfti nú samt að leggja mig aðeins því ég átti tíma í ummálsmælingu kl 12. Náði að kúra í 1 og ½ tíma fyrir mælinguna. Svo náði ég öðrum 2 tímum áður en ég þurfti að vakna…ég var að fara á bíóstefnumót með yngsta syni mínum (8 ára) :)
Bíópopp er eitt af því besta poppi sem ég veit um…..og að fá mér ekkert var hriiiiiiikalega erfitt ! Hann fékk popp og kók og ég sat með ½ líter af vatni !
Ég drakk 3,3 lítra af vatni í dag.
Næturvakt
3 kaffi með rjóma
Klukkan 0245
Harðfiskur með smjöri
Klukkan 0840
Nectar prótein með rjómaslettu
Magnecium+calcium
Klukkan 1300
Rjómalöguð aspassúpa……hefði nægt hálfur skammtur
CLA, omega3+D-vit, multivit
Svefn frá klukkan 1400-1600 (vúbbídú)
Klukkan 1700
2 skinkusneiðar rúllaðar upp með 2 ostsneiðum,
3 flísar af rauðri papriku