2 mánuðir til jóla ! :)
Hef svolítið verið að spá í hvernig ég eigi að tækla jólin, ekki alveg búin að gera upp við mig hvernig best er að gera þetta. Held samt að til að halda „skaðaðanum“ í lágmarki muni ég neyta þeirra kolvetna sem ég kýs að borða seinnipart dags. Eins og kartöflur með jólamatnum og mandarínurnar og svoleiðis :) Svo að taka hreinsun strax eftir áramótin.
Ég drakk 3,75 lítra af vatni í dag
Næturvaktin
2 x kaffi með kaffirjóma
Klukkan 0315
3 sneiðar skólaostur, 3 skinkusneiðar, 3 bitar af mexíkóosti og hvítkál vafið utan um.
Klukkan 0830 (fyrir svefn)
½ mæliskeið Nectar blandað í 150 ml vatn (eiginmaðurinn kláraði rjómann !)
1 x multivítamín, 2 x omega3+D-vítamín
Svefn frá kl 0930-1345
Fastan
Kaffi með kókosolíu
Husk töflur (hefði líklegast átt að geyma þær aðeins en gleymdi mér)
Klukkan 1700
Kaffi með rjóma og MCT olíu……var á flakki og gleymdi að borða :/
Klukkan 1930
Purusteik, salat og bernaise
Husk töflur, CLA
Magnecium citrate fyrir vinnu