Jæja :) Öllu eðlilega hefði þetta verið fyrri dagvaktin, en ég tók mér frí á morgun og er þvi komin í frí kl 16 í dag ! :) :)
Tók með mér nesti í vinnuna, ég sem var búin að mikla þetta svo fyrir mér áður en ég byrjaði en þetta er svoooo lítið mál :) :)
Svefn frá kl
0030-0615
Fastan
2 x kaffi með rjóma
Kl 0930
1 x kaffishake
(kaffi, cappuccino nectar protein, ísmolar, vatn og rjómi)
kl 1300
2 x ostaklattar með heimsins besta túnfisksalati sem eiginmaðurinn býr til :)
Kl 1645
Kom heim með salat disk úr vinnunni og nartaði aðeins í hann.
Salat, græn paprika, gúrka, 1 harðsoðið egg, fetaostur.
Kl 2030
2 x fiskiklattar með ofnsteiktu blómkáli og brokkolí með cheddarostasósu :)
Vatnsdrykkjan fór í 2,1 lítra.