Sumir dagar eru svona ;) Ég var á kvöldvakt í gær og ætti að vera að mæta á aðra svoleiðis kl 16 í dag. En þar sem einn samstarfsmaður minn skrapp á tjúttið í gær þá var vaktin hans í boði ;)
Mæting ss kl 8 og búin á miðnætti. Þá er eins fallegt að nesta sig vel upp og þakka fyrir kaffivélina ;)
Svefn frá kl 0040-0630
Fastan
2 x kaffi með rjóma
Kl 1000
Trefjaboost
Hádegi í mötuneytinu
Lambalærisneiðar og sveppasósa
Þær voru í raspi en ég skóf af þeim eins mikið og ég gat
Kl 1545
Rest af trefjaboostinu síðan í morgun
Kl 2045
2 x kalkúnamúffur með bernaise
Var að vinna fram að miðnætti og ætlaði að fá mér prótein með rjóma þegar ég kæmi heim en ég var svo þreytt að ég gleymdi því :/
Vatnsdrykkjan fór í 3 lítra.