Síðasti frídagurinn í dag fyrir vaktasyrpu.
Þar sem ég er ekkert að ná að hvílast almennilega fyrir fyrri næturvakt þá reyni ég að fara seinna að sofa síðustu nóttina fyrir vakt og reyni þá að sofa lengur þann morgun.
Í morgun var það ekki í boði þar sem sonur minn var farlaus í vinnuna og ég þurfti að keyra hann…….vaknaði á undan fuglunum næstum því haha :)
Svefn frá kl
2340-0620
Fastan
2 x kaffi með rjóma
Kl 0945
2 x mæjónesbrauð með smjöri og krydd havarti osti
(uppskriftin er í uppskriftaflipanum)
Haldiði að ég hafi ekki náð að leggja mig ??
Náði lúr á milli 12-1410
Kl 1500
Heitur chia grautur með salti, rjóma og karamellusírópi
Kl 1630
1 x mæjónesbrauð með smjöri og kindakæfu
Kl 2030
Kjúklingalundir í texmex ostasósu, ferskt salat með feta með
(Smelltu á feita textann fyrir uppskrift)
Þar sem ég er að fara á næturvakt þá var ekkert meira í kvöld ;)
Vatnsdrykkjan fór í 2,2 lítra……