Að vera lasin á næturvakt, já eða á einhverri vakt, er ekki góð skemmtun.
Var að drepast í hálsinum á síðustu næturvakt, og er núna algjörlega raddlaus :(
Átti að vera svo á kvöldvakt en fór ekki og mun ekki fara restina af syrpunni.
Fór til læknis og er með berkju/hálsbólgur og sýkingu í hálsinum.
Komin á stera og pensilín og þarf hóstasaft og alls konar drasl.
Verð að fresta hreinsuninni þar til þetta batnar :(
Næturvaktin
Kaffi með kaffirjóma…slatti af því
Klukkan 0230
Hrökkkex með síldarsalatinu sem ég útbjó í gær
Svefn frá klukkan 0900-1130
Klukkan 1230
2 harðsoðin egg, 6 sneiðar beikon
2 x omega3+D-vítamín, 2 x husk töflur, 1 x multivítamín
Klukkan 1630
Afgangurinn af hryggnum sem ég var með í gærkvöldi, keypti ½ lítinn og það var svona ¼ eftir af honum. Bernaise með.