Hleðsludagarnir verða einu dagarnir þar sem ég mun ekki skrá nákvæmlega hvernig mataræðið er, heldur stikla á stóru ;)
Líðanin í dag var bara ágæt, var með hausverk stóran part dagsins og það hefur líklegast verið vegna skorts á fitu.
Kaffi í morgun, kotasæluklattar með skinku og osti í hádeginu.
Svo varð klukkan 4 og ég búin að fara í búðina.
Kallinn var að vinna og ég fékk snapp af honum með hnetustykki
(með sírópi á) og kók.
Ég keypti mér hrískökur og nizza heslihnetu- og súkkulaðismjör !
Fékk mér 3 stk
Síðan kom kvöldmatur…….
Og af öllu því sem hægt hefði verið að hafa, af öllu subbinu sem er í boði að éta, þá völdum við lambalærisneiðar í raspi, með kartöflum, rabarbarasultu og rauðkáli ! :D :D
Seinna um kvöldið fengum við okkur vanilluíspinna með súkkulaði utan á (þessir venjulegu Kjörís pinnar) og stjörnupopp. Gat ekki klárað poppið.
Þar með var hleðslunni lokið og í lok kvölds fengum við okkur harðfisk :)
Prótein í lok hleðsludags er svo gott til að jafna út blóðsykurinn.
Vatnsdrykkjan fór í 2 lítra.