Í svona ferli, þeas að breyta um lífsstíl, þá verður maður að temja sér þolinmæði.
Það gæti alveg komið að því hjá okkur hjónum að við myndum staðna í einhvern tíma…..kannski gerist það ekki en hver veit ;)
Síðast var það þannig…..misstum fyrst, stóðum svo í stað og þá gáfumst við upp.
En ekki núna.
Núna verður haldið áfram, því ég þekki það af dugnaðarforkinum henni systu minni, að þetta virkar ! Þetta er langferð, ekki skrepp ;)
Svefn frá kl
0230-0840
Fastan
2 x kaffibollar með kókosolíu
Kl 1115
Ostaklattasamloka með túnfisksalati
Kl ca 1600
2 ostaklattar, með smá smjöri, skinku og osti, skutlað í öbbann
Kvöldmatur kl 20 ca
Ofnbakaður lax á aspasbeði með
blómkálsgrjóna“mús“
Kvöldsnarl
Svínapurusnakk
Magnecium í vatni fyrir svefn.
Vatnsdrykkjan fór í 2,3 lítra