Jæja ljúfur og ljúflingar :)
Ég var orðin svo þreytt í gærkvöldi að ég kom mér ekki í bælið !
Sat hérna frammi í stofu eins og zombie þangað til ég lufsaðist í bælið rúmlega hálf 1.
Það er stundum erfitt að vinna upp svefnskuld ;)
Svefn frá kl 0040-0945
Fastan
2 x kaffi með rjóma
Kl 1200
Heitur chia grautur með salti, rjóma og vanillu sírópi
Kl 1530
Boost
Avocado, spínat, strawberrie/kiwi nectar, mct olía og vatn
Kl 2030
Ofnsteiktar lambasneiðar með smjörsteiktu blómkáli og brokkolí, svepparjómasósu og fersku salati með feta.
Núna í kvöld ákváðum við hjónin að setja pásu á CN fram yfir helgina.
Kistulagning, jarðarför, afmæli, eurovision….
Ný hreinsun á mánudaginn.
Ætla samt að takmarka neyslu kolvetna við seinnipart eða kvöld, þetta verður ekkert stanslaust gúff alla helgina :)
Hafið það endalaust gott á meðan :)