Jæja, ég er á lífi eftir ræktina í gær…..finn aðeins fyrir strengjum en ekki eins mikið og ég átti von á, enda teygði ég rosalega vel eftir æfinguna :)
Svefn frá kl
2330-0630
Fastan
1 x svartur kaffi
1 x kaffi með rjóma
Kl 0915
Heitur chiagrautur með salti, karamellusírópi og rjóma
Kl 1215
Enn að ganga á afganginn af hakkréttinum síðan í fyrrakvöld ;)
Kl 17
3 x ostasneiðar með eldstöfum inní
Þegar hér var komið var ég ekkert rosalega svöng, var með saumaklúbb um kvöldið og fékk mér yfir kvöldið nokkur svona djöflaegg, gúrku og blómkál með dýfu og sódavatn ;)
Vatnsdrykkjan fór í 2,6 lítra.