Við hjónin sprengdum þennan múr í dag :) :)
10,1 kg farið hjá okkur samtals, hann -6,1 og ég -4 :)
Ekki það að það er ekki allt mælanlegt á vigtinni, alls ekki.
Vigtin mælir ekki hvað við sofum betur, vigtin mælir ekki betri líðan og meiri orku.
Vigtin mælir ekki betri húð (hann var með svakalegt exem á hnúunum sem er nánast horfið) og hún er ekki með hávaðamæli sem mælir minni hrotur hjá bóndanum ;)
Hún mælir ekki heldur minnkandi skapsveiflur ;)
Við förum sátt inní hleðsludag :)
Byrjaði hleðslu eins og vanalega á poppkexi með súkkulaðismjöri.
Við fengum okkur svo thai í kvöldmat
(litlar vorrúllur, djúpsteiktar rækjur, eggjanúðlur og hrísgrjón)
1 kókglas með matnum.
Stjörnumix gúmmí um kl 2130.
½ skeið strawberrie mousse nectar prótein í vatni fyrir svefn
Drakk 2 lítra af vatni í dag.