Sunnudagur…

…..og tilraun fer í gang.
Ég vigtaði fyrstu vigtun á mánudaginn…..búin að fara alveg eftir CN síðan á miðvikudag og búin að vigta mig á hverjum degi síðan þá.  Við vigtun í morgun voru farin síðan á mánudag 2,4 kg !
Frá og með deginum í dag og fram á miðvikudagskvöld, ætla ég að borða allt.  Sama hvort það er beikon, kartöflur, appelsína eða súkkulaði.  Ég ætla ekki að vigta mig fyrr en á fimmtudagsmorgun, þegar ég byrja í hreinsuninni.  Ég ætla að sjá, svart á hvítu, hvað stjórnlaust kolvetnafylleri gerir mér á vigtinni ;)
Þannig að næsta færsla kemur ekki inn fyrr en á fimmtudag :)

Stay tuned ;)

Laugardagur…

…og ég á seinni kvöldvakt ;)  Náði að sofa frá 00:45-11:30.

Klukkan 11:45
Kaffi með rjóma

Klukkan 14:15
Nectar með skvettu af rjóma

Klukkan 16:15
½ kjarnalaus gúrka með skinku/beikon salati

Smella fyrir uppskrift

Smella fyrir uppskrift

Klukkan 19
Kjúklingasalat í rjómapestó

Klukkan 21
Stjörnupopp

Hoppið…..

Ég vinn vaktavinnu.  Ein vinnusyrpa er 5 dagar og á þeim dögum eru unnar 6 vaktir.  Tvisvar í syrpu er hopp á milli vakta, ss af næturvakt yfir á kvöldvakt og af kvöldvakt yfir á dagvakt.  Á hoppi eru bara 8 tímar á milli vakta.
Ég var á hoppi í dag sem þýddi að ég kláraði vakt klukkan 8 í morgun, dreif mig heim, svaf og var mætt aftur kl 16 til miðnættis.  Á hoppi gengur mér yfirleitt skelfilega að sofa….í dag svaf ég frá 9 til 12:45.

Miðað við að vera ekki byrjuð formlega í hreinsun þá finnst mér að þetta gangi bara fínt :)  Þeas að venjast þessu mataræði :)  Á örugglega eftir að taka kolvetnafyllerí áður en ég byrja hreinsunina ;)

Þetta borðaði ég í dag:

Klukkan 01:45 (næturvakt)
4 spægipylsusneiðar í 4 ostsneiðum

klukkan 08:30 (fyrir svefn)
Nectar með rjóma + magnesíum og kalk

Klukkan 13:15 (eftir svefn)
Kaffi með rjóma

Smella fyrir uppskift

Smella fyrir uppskrift

Klukkan 16:15
½ kjarnalaus gúrka með skinku/beikon salati

Klukkan 18:45 (mötuneyti)
3 litlir ofnsteiktir kjúklingabitar m/skinni, smá sletta af kokteil og 1 kúfuð msk af hrásalati
CLA, omega3+D-vit, og fjölvítamín

 Klukkan 21
Skyr.is með rjóma

Klukkan 22:30
Harðfiskbiti með smjöri

Vinnusyrpa hefst…

…á næturvakt eins og venjan er :)  Fyrsta vakt eftir sumarfrí og það var bara gott að komast aftur í rútínuna :)  Svaf svo frá 9 til 15.  Ég viktaði mig þegar ég vaknaði og frá því í fyrstu mælingu á mánudaginn (1-9) er ég núna 1,4 kg léttari !  Tikkerinn hérna til hliðar sýnir mun frá 1.sept til nýjustu viktunar :)
Það sem fór ofan í mig í dag var:

Klukkan 01:40
½ skyr.is dós með vanillu + dash af rjóma

Klukkan 05:15
3 bitar af piparosti

Klukkan 8:30 (fyrir svefn)
15 gr nectar í 150 ml vatn + dash rjómi, magnesíum og kalk

Klukkan 15:30
Kaffi með slettu af rjóma

Klukkan 17:30
Kaffi með rjóma…..þetta venst ;)

Klukkan 19:15
Ofnbakaður lax, salat (ruccola og paprika)
smjörsteiktir sveppir+zuccini
CLA, MCT, omega3+D-vit, og fjölvítamín

Smella til að stækka

Smella til að stækka

 Klukkan 21:45
harðfiskur og smjörvi

Vatnsmagnið var í um 2 lítrum :)

Svefnlítil nótt :/

Kjáninn ég !  Þegar maðurinn minn kom heim, frekar seint í gærkvöldi, þá sá hann nýju kaffigræjuna og við auðvitað þurftum að vígja hana.  Fékk mér ss einn kaffi með rjóma og kókosolíu rétt fyrir 11 í gærkvöldi, og ég sem drekk ekki kaffi öllu eðlilega !
Að sofna eftir það…..well það gekk seint og illa.  Svo loksins þegar ég sofna, þá vaknar yngsti stákurinn og vekur mig (um kl 2:30), og ég lá andvaka til að verða 5 !
Þurfti svo að smala liðinu út fyrir 8 í skólann.
Náði að sofna í 2 tíma í dag sem var nauðsyn því ég er að byrja á næturvakt eftir sumarfrí ;)

Ég ætla ekki að byrja í hreinsun fyrr en eftir fyrirlesturinn í næstu viku, en ég ætla fram að því að tileinka mér smá og smá í einu, til að þetta verði auðveldara :)

Það sem ég setti ofan í mig í dag:

Klukkan 8:30
Kaffibolli með msk rjóma og ½ tsk kókosolíu

Klukkan 11:30
15 gr nectar, blandað í 200 ml af vatni og 30 ml af rjóma.
(Note to self…..ekki nota blandarann með rjómann útí haha)

Klukkan 13:30
170 gr kjúklingur, 30 gr (2 msk) Hlöllasósa og salat
(iceberg, rauð paprika, 2 litlir sveppir)
CLA, MCT, omega3+D-vit, og fjölvítamín

IMG_20140903_132847

Smella til að stækka

 Klukkan 16:30
85 gr skyr.is m/vanillu + 15 ml rjómi

Klukkan 20:30
160 gr purusteik, salat (iceberg, gúrka, örlítið af papriku) og 30 gr bernaise sósa

Smelltu til að stækka

Smelltu til að stækka

Drakk ekki meira kaffi en þennan eina bolla í morgun, vissi að ég þyrfti að sofna og ætlaði ekki að taka sénsinn.  Eins með vatnið, drakk um 1½ líter.
Ég held að miðað við þetta sé ég vel undir 30 gr í dag :)

Skipulagning….

Ég skrapp í borgina í dag.  Var búin að panta prótein og fleira á sprengiviku í Fitness Sport þannig að ég fór að sækja.  Ákvað síðan að skipta út kaffivélinni fyrst kaffi er inní þessu…..fékk mér kaffi í morgun meira að segja og ég sem drekk ekki kaffi !
Eins og kaffi lyktar vel í brennslu (Kaffitár er hérna nánast við hliðina) þá fylgist bragðið ekki að hehe :)  En það venst örugglega :)

Namm.....

Namm…..

Ákvörðun tekin…..

i-can-and-i-will
Er ekki tilvalið að byrja nýjan mánuð á ákveðni ?  Heyrði af carb nite um helgina, skoðaði það og heillaðist algerlega !
Búin að skrá mig á fyrirlestur núna 9. sept og mun byrja á þessu í kjölfarið.
Hef oft liðið betur í eigin skinni, og er komin með uppí kok af jójó sukki.
Hlakka til að byrja ! :)