Mánudagur 27. okt

Hopp í vinnunni í dag, var ss á kvöldvakt í gær og á dagvakt í dag……bara ein vakt eftir og svo vaktafrí :)

Ég drakk 4,37 lítra af vatni í dag

Svefn frá kl 0045-0650

Fastan
Kaffi með rjóma

Smelltu og finndu þitt bragð á fitnesssport.is

Smelltu og finndu þitt bragð á fitnesssport.is

 Klukkan 1000
½ poki Crystal Sky Nectar , blandað í 150 ml vatn með 1 msk rjóma.
Þetta er fínt bragð, svona eins og fruit punch :)
2 x omega3+D-vítamín

Klukkan 1145 (mötuneyti)
Ofnbakaður fiskur með „eggwash“ utan á, salat og sósa með fiskinum.
1 x multivítamín, 2 x husk töflur

 Klukkan 1515
3 skólaostsneiðar, 3 skinkusneiðar, rúllaðar upp með mexíkóosti inní
Kaffi með msk rjóma og msk MCT olía

 Klukkan 2000
160 gr af helgarskinku frá Ali……frábært bland af próteini og fitu :)
1 x CLA, 2 x husk töflur

Kvöldsnarl
½ mæliðskeið strawberry mousse nectar með 2 tsk rjóma
Magnecium fyrir svefn

Laugardagur 25. okt – Ekki hleðsla

Ég er að vinna kvöldvakt, bæði í kvöld og annað kvöld og ákvörðun mín um að fresta hleðslunni um 1 dag snérist eingöngu að því sem er í boði i matsalnum á annaðkvöld ;)  Það á að vera bayonne skinka með öllu tilheyrandi og það er bara
fullkomin hleðslumáltíð :)  Hlakka til :)

Ég drakk 4 lítra af vatni í dag

Klukkan 0130 (næturvakt)
½ gúrka með laxa- og rækjusalati

Klukkan 0300
1 pepperoniputti

Smelltu og finndu þitt bragð á fitnesssport.is

Smelltu og finndu þitt bragð á fitnesssport.is

Klukkan 0830 (fyrir svefn)
Nýtt Nectar bragð, það er mjög gott :)
Hálfur poki, blandaður í ca 150 ml vatn og rúmlega 1 msk rjómi
1 x multivítamín, 2 x omega3+D-vítamín

Svefn frá 0850-1410

Fastan
Kaffi með rjóma

Klukkan 1730 (kvöldvakt)
Kaffi með rjóma og MCT olíu
Vænn biti af kindakæfu

 Klukkan 2030
150 gr af Ali helgar skinku
½ gúrka, smávegis hvítkál
1 x CLA, 2 x husk töflur

Kvöldsnarl á kvöldvakt
Harðfiskur og smjör

Föstudagur 24. okt

2 mánuðir til jóla ! :)
Hef svolítið verið að spá í hvernig ég eigi að tækla jólin, ekki alveg búin að gera upp við mig hvernig best er að gera þetta.  Held samt að til að halda „skaðaðanum“ í lágmarki muni ég neyta þeirra kolvetna sem ég kýs að borða seinnipart dags.  Eins og kartöflur með jólamatnum og mandarínurnar og svoleiðis :)  Svo að taka hreinsun strax eftir áramótin.

Ég drakk 3,75 lítra af vatni í dag

Næturvaktin
2 x kaffi með kaffirjóma

PhotoGrid_1414120688656Klukkan 0315
3 sneiðar skólaostur, 3 skinkusneiðar, 3 bitar af mexíkóosti og hvítkál vafið utan um.

Smelltu og finndu þitt bragð á fitnesssport.is

Smelltu og finndu þitt bragð á Fitness Sport

Klukkan 0830 (fyrir svefn)
½ mæliskeið Nectar blandað í 150 ml vatn (eiginmaðurinn kláraði rjómann !)
1 x multivítamín, 2 x omega3+D-vítamín

 Svefn frá kl 0930-1345

Fastan
Kaffi með kókosolíu
Husk töflur (hefði líklegast átt að geyma þær aðeins en gleymdi mér)

 Klukkan 1700
Kaffi með rjóma og MCT olíu……var á flakki og gleymdi að borða :/

IMG_20141024_191845Klukkan 1930
Purusteik, salat og bernaise
Husk töflur, CLA

 Magnecium citrate fyrir vinnu

Nectar prótein

Ég ELSKA Nectar próteinið !  Það er eflaust hellingur til af isolated próteinum sem eru tilvalin fyrir CN en fyrir mig er bara Nectar sem kemur til greina :)
Þau eru til í svoooooo mörgun bragðtegundum og þau eru öll nema 1 með 0 gr af kolvetnum !  Það er 1 gr af kolvetnum í skammti af „double stuffed cookies“
Ég fór í dag í Fitness Sport og var græjuð upp með FULLT af nammi !!!
Ég er himinlifandi hérna og hlakka svoooo til að smakka :) :) :)

Smelltu til að velja þitt uppáhald :)

Smelltu til að velja þitt uppáhald :)

Fimmtudagur 23. okt

Mér hefur hingað til ekkert gengið voðalega vel að ná að sofa almennilega fyrir fyrri næturvaktina, reyni því að vaka aðeins lengur kvöldið áður, vakna snemma til að vekja strákana og verð þá nægilega sybbin til að geta lagt mig aaaaðeins fyrir vaktina.
Ég drakk 4,25 lítra af vatni í dag.

Svefn frá kl 0130-0710

Fastan
Kaffi með 1 tsk rjóma, kaffi með ½ tsk kókosolíu

Smelltu og finndu þitt bragð á Fitness Sport

Smelltu og finndu þitt bragð á Fitness Sport

 Klukkan 1000
½ mæliskeið nectar, blandað í 150 ml vatn, með 1 msk rjóma.
2 x omega3+D-vítamín

Klukkan 1240
Og enn er það hakkrétturinn góði sem fyllir magann í hádeginu :)
Gott að geta haft svona til að grípa í og hita upp þegar maður er að flýta sér :)
2 x husk töflur, 1 x multivítamín

IMG_20141023_175147 Klukkan 1800
Fór í keilu með vinnunni eftir starfsmannafund og við borðuðum á Fellini.
Ég fékk mér kjúklingasalat….kjúklingur, tómatar, rauðlaukur, parmesanostur
og bernaise !  Það átti að vera sesarsósa en hún var búin.

Lagði mig fyrir næturvakt frá ca 2030-2230

IMG_20141023_230243Kvöldsnarl
Kaffi með MCT olíu og kaka sem klúðraðist ;)
Fékk uppskrift hjá frænku minni sem henni fannst æði, kakan hennar varð mjúk og æðislega góð, og var fljótandi þegar hún setti hana í bollann fyrir eldun.
Það sem við gerðum misjafnt var að hún bræddi ekki kókosolíuna (ég gerði það) og hún notaði möndlumjólkina sem uppskriftin kallaði á.
Ég átti ekki svoleiðis til og notaði rjóma í staðinn.
Mitt „deig“ varð að klumpi og kakan……..well hún varð mjööööög skrítin í áferð, eins og sandur og það er áferð sem ég er ekki að fíla.  Líklegast eitthvað síðan ég át uppúr sandkassanum í leikskóla hahaha :)
Borðaði aðeins af henni samt…bragðið var ekki skelfilegt.
Set ekki inn uppskrift fyrr en ég næ henni rétt.