Það er magnað hvað manni langar alltaf að sækja huggun í mat, og því subbulegri sem hann er, því betri plástur heldur maður að hann sé.
Gærdagurinn var okkur fjölskyldunni mjög erfiður, og ég var alveg kominn með hausinn í „Æj fokkit, ég tek þá bara aðra hreinsun“ gírinn, en náði að hrista það af mér og halda mig á þeirri braut sem ég er komin á, ákveðin í að standa mig.
Ég væri ekki að svindla á neinum nema sjálfri mér og ég hef gert það of lengi.
Ég hefði átt að vera á fyrri næturvakt sl nótt en tók frí.
Hleðsla verður samkvæmt plani á morgun.
Svefn frá kl
0010-0610
Fastan
2 x kaffi með rjóma
Kl 1100
Chia grauturinn góði sem er orðinn eiginlega að morgunstarti hjá mér :)
Chia, salt, rómi og vanillusíróp.
Vítamínin
Kl 1315
Rjómaosta-eggjapasta
Drakk kaffi hérna á milli og smakkaði mixed fruit mineral drink í sódavatni, hann var mjög fínn :)
Kl 2030
Hamborgari að hætti eiginmannsins.
Frá botni og upp:
1 x ostaklatti
Smá rönd Bó sósa
iceberg
2 x tómatsneiðar
4 x gúrkusneiðar
smjörsteiktir sveppir
3 x beikonsneiðar
heimagerður borgari með osti
Toppað með Felix tómatsósu
Topp næs :)
Lagði mig í ca 1½ klst fyrir næturvaktina.
Vatnsdrykkjan fór í 2,6 lítra.