Sunnudagur 17.04

tumblr_m95fj6zeah1ro6sw8o1_500

Þetta er soldið svoleiðis, ég er ekki í megrun, ég er að breyta um lífsstíl og ætla mér að hafa hann til frambúðar :)
Mér finnst svo skondið að fólk fettir nefið yfir því að maður sleppi kartöflum eða borði ekki brauð eða pasta og vandi valið á því sem maður setji ofan í sig, á meðan sama fólkið sagði ekkert við því ef maður fékk sér franskar og sveittan borgara eða var með kók alltaf.
En ég skal sko sýna þeim ;)
Ég ætla að borða mig í betri kropp :)

Ég var á hoppi í dag, sem þýðir næturvakt og svo kvöldvakt 8 tímum seinna.

Kl 0315 (næturmötuneyti)
2 x ostarúllur með spægipylsu
1 harðsoðið egg

Kl 0630
IMG_20160417_062815
½ kjarnhreinsuð gúrka með laxa- og rækjusalati

Svefn frá 0845-1330

Fastan
2 x kaffi með rjóma

 Kl 1640 (kvöldvakt)
2 bitar af ostahrökkkexi með laxa- og rækjusalati

 Kl 1900
LKL salat frá Serrano

Kvöldsnarl
Harðfiskur og smjör

Vatnsdrykkjan fór í 2,8 lítra :)

Laugardagur 16.04

A dark tiled room as a background

Jæja, komin ný vaktasyrpa í vinnunni, hún byrjar eins og vanalega á næturvakt.

 Kl 0315 (nætur mötuneyti)
2 x ostarúllur með skinku
Nokkrar gúrku sneiðar

Einhvern tímann undir morgun
Vænn biti af kindakæfu.
Ég er svo heppin að geta étið svona kæfu beint uppúr dollunni, góður fitugjafi :)

Svefn frá kl ca 09-14

Fastan
2 x kaffi með rjóma

 Kl 1700
2 x ostaklattasneiðar með camenbert smurosti

Kl 1930
Afgangur af lambaæri, með bernaise og salati

Vatnið fór í 3 lítra í dag :)

HLEÐSLA !!

carbload23
Hleðsludagarnir verða einu dagarnir þar sem ég mun ekki skrá nákvæmlega hvernig mataræðið er, heldur stikla á stóru ;)

Líðanin í dag var bara ágæt, var með hausverk stóran part dagsins og það hefur líklegast verið vegna skorts á fitu.

Kaffi í morgun, kotasæluklattar með skinku og osti í hádeginu.

Svo varð klukkan 4 og ég búin að fara í búðina.
Kallinn var að vinna og ég fékk snapp af honum með hnetustykki
(með sírópi á) og kók.
Ég keypti mér hrískökur og nizza heslihnetu- og súkkulaðismjör !
Fékk mér 3 stk

IMG_20160414_161530

Síðan kom kvöldmatur…….
Og af öllu því sem hægt hefði verið að hafa, af öllu subbinu sem er í boði að éta, þá völdum við lambalærisneiðar í raspi, með kartöflum, rabarbarasultu og rauðkáli ! :D :D
IMG_20160414_184127

Seinna um kvöldið fengum við okkur vanilluíspinna með súkkulaði utan á (þessir venjulegu Kjörís pinnar) og stjörnupopp.  Gat ekki klárað poppið.

Þar með var hleðslunni lokið og í lok kvölds fengum við okkur harðfisk :)
Prótein í lok hleðsludags er svo gott til að jafna út blóðsykurinn.

Vatnsdrykkjan fór í 2 lítra.

Hreinsunardagur 10

12a22d8b87b74673c598e1ca08a80eec

Faktískt séð erum við að ljúka hreinsun í dag EN við ætlum að hlaða
á morgun :)
Hreinsunin má teygjast alveg uppí 14 daga.

Á morgnana byrja ég alltaf á vatnsglasi áður en ég fæ mér kaffibolla.
Vil halda að ég sé bara að vökva kerfið og koma því í gang með þessu glasi ;)

Svefn frá kl 0120-0645

Fastan
1 x kaffibolli með rjóma

Kl 0930
Apple ecstasy nectar prótein í vatni, með rjóma
single-serve-protein-packets-syntrax-nectar-protein-powder-grab-n-go-box-apple-ecstasy-1

Kl 1300
Restin af sesar salatinu frá því í gær.
Bætti við á það meiri fetaosti og smá slurpi af pítusósu.
3 x eve vítamín, 1 x CLA

 Kvöldmatur
Hakkpanna með brokkolíbeikoni og fersku salati með feta
IMG_20160413_201517_resized

Kvöldsnarl
Wild grape nectar með rjóma
Megnecium í vatni fyrir svefn

Vatnið fór í 2,4 lítra í dag :)

HLEÐSLA Á MORGUN !!!

Hreinsunardagur 9

A dark tiled room as a background

Vá við erum búin með heila 8 daga í hreinsun og þetta hefur ekki verið neitt mál !!
Þegar við fórum á CN seint árið 2014 þá leið mér amk mjög vel….eiginmaðurinn var tregari fyrir þessu, miklaði þetta svolítið fyrir sér.  Síðan þá höfum við, amk ég, oft hugsað um að byrja aftur en alltaf fundið einhverja afsökun.
Núna vorum við harðákveðin og þetta er ekkert mál !

Svefn 0030-0830

Fastan
2 x kaffi með ööörlitlu af kókosolíu og smá rjóma

Kl 1045
Kaffiboost
IMG_20160412_103305

 Kl 1430
Í hádeginu fór ég á uppáhalds veitingastaðinn minn hérna í Reykjanesbæ, Soho Café, og keypti Cesar Salat með kalkúnabringu.  Sleppti brauðteningunum.
Tók það með mér heim og borðaði eftir útréttingar.
Samanstendur af salati, kalkún, cesarsósu, feta, smá sólþurrkaðir tómatar, parmesan og ég bætti við það avocado.
Stór skammtur svo ég á helming eftir :)
IMG_20160412_141007

Seinnipartur
Ostarúlla með skinku

Kvöldmatur
Beikonvafin guacamole fyllt kjúklingabringa
(bara ½, þá var ég orðin svooo södd)
Með salati og fetaosti

 Kvöldsnarl
Harðfiskur með smá smjöri
Magnecium í vatni

Vatnsdrykkjan fór í 2,6 lítra :)