Þriðjudagur 26.04

13095747_1120893401286325_9137979094063873949_n

Ný vinnusyrpa hafin :)
Næturvakt í nótt, einhver smá svefn og svo meiri vinna :)

Næturvaktin
Smá harðfiskur, með og án smjörs.
3 x skinkusneiðar + 3 x ostasneiðar, hitaðar í grilli.
Salat og 2 x kaffibollar

 Strawberrie Mousse nectar með rjóma fyrir svefn

Svefn frá ca
0930-1430

Fastan
1 x kaffi með kókosolíu og annar með rjóma (kókosolían búin)

Svo bara þvældust óvæntir atburðir fyrir mér og ég gat ekki borðað fyrr en um kl 20 !
Þá fékk ég mér Trefjasprengjuboost, uppskrift í Boost ýmiskonar 

½ kvöldvakt kl 20

Ca kl 22
2 x osta-skinkurúllur og kaffi

Vatnsdrykkja fór í  2,3 lítra :)

Næturvakt framundan……. ;)

Mánudagur 25.04

Do-It-Because-They-Said-You-Couldnt1

Þá er þetta vaktafrí að klárast…..fyrsta næturvakt nk nótt.

Svefn frá ca kl
0030-0810

Fastan
2 x kaffibollar með kókosolíu

 Kl 1130
Heitur chiagrautur með sjávarsalti og Torrini karamellusírópi
(sykurlausu að sjálfsögðu)
1 x CLA, 2 x magnecium nitrate, 3 x husk, 3 x eve vítamín

Kl 1500
Var á flakki í boginni og gleymdi að taka með mér nesti.  Keypti mér lágkolvetna Hlölla með skinku, osti, beikoni, gúrku, salati og Hlöllasósu og borðaði ca 1/3 af honum

Svefn frá kl (leggur fyrir næturvakt)
1700-2000

Kvöldmatur
13076655_10208271881007408_7815625820121052626_n
2 x Kielbasa pylsur frá Kjarnafæði,  með 0 gr kolvetni og mjög góðar :)
1 spælegg, sveppir og laukur, og salat með feta.  Jú og piparsósa.

Vatndrykkjan fór í 2,8 lítra.

Sunnudagur 24.04

635e2c951ffd0a104a233a136f9d33a8

Mig er farið að langa svolítið til að sofa út !  Sérstaklega um helgar ef ég er í fríi….
Kannski það gerist einn daginn haha :)

Svefn frá kl
0050-0750

Fastan
1 x kaffi með kókosolíu

Kl 1100
IMG_20160424_105428_resized
Heitur chia grautur með rjóma og kanil
1 x CLA, 3 x husk töflur, 2 x magnecium citrate, 3 x eve vítamín

 Kl 1500
2 x ostaklattar með smjöri, skinku og osti í öbbanum

Kvöldmatur
Afgangur af lambahryggnum síðan í gær, með rjómasósunni og smjörsteiktu hvítkáli.

 Kvöldsnarl
Strawberrie mousse nectar prótein með smá rjóma

Magnecium í vatni fyrir svefn

Vatnsdrykkjan fór í 2,6 lítra

Laugardagur 23.04

Easing-into-Change-before-Weight-Loss-Surgery

Nú eigum við viku fram að næstu hleðslu….ætlum ss ekki að hlaða fyrr en næsta laugardag.  Spurning samt hvort það sé skynsamlegt að eiga official nammidag sem hleðsludag ?  Það verður þá að koma í ljós, við færum hann þá bara ef það er ekki að gera sig fyrir okkur :)
Ég er ennþá í veseni með……well að skila frá mér ;)
Verð að finna leið til að fixa það, að gera svoleiðis einu sinni í viku er ekki að gera sig fyrir kerfið.

Svefn frá kl
0000-0820

Fastan
2 x kaffi með kókosolíu
2 x husk

Kl 1130
Chia grautur með rjóma + 5 bláberjum

 Seinniparturinn
Ég var að prófa nýtt og varð að smakka það ;)
2 x kalkúna caprese múffur

 Kvöldmatur kl 2100
IMG_20160423_211107_resized
Lambahryggur með fersku salati og smjörsteiktu rósakáli…mmm……

Magnecium í vatni fyrir svefn

Vatnsdrykkjan fór í  2,6 lítra

Föstudagur 22.04

download

Í svona ferli, þeas að breyta um lífsstíl, þá verður maður að temja sér þolinmæði.
Það gæti alveg komið að því hjá okkur hjónum að við myndum staðna í einhvern tíma…..kannski gerist það ekki en hver veit  ;)
Síðast var það þannig…..misstum fyrst, stóðum svo í stað og þá gáfumst við upp.
En ekki núna.
Núna verður haldið áfram, því ég þekki það af dugnaðarforkinum henni systu minni, að þetta virkar !  Þetta er langferð, ekki skrepp ;)

Svefn frá kl
0230-0840

Fastan
2 x kaffibollar með kókosolíu

 Kl 1115
Ostaklattasamloka með túnfisksalati

Kl ca 1600
13076958_10208249217840843_2024804410281469266_n
2 ostaklattar, með smá smjöri, skinku og osti, skutlað í öbbann

 Kvöldmatur kl 20 ca
12108851_10208250630036147_1485034051165093682_n
Ofnbakaður lax á aspasbeði með
blómkálsgrjóna“mús“

Kvöldsnarl
Svínapurusnakk

Magnecium í vatni fyrir svefn.

Vatnsdrykkjan fór í 2,3 lítra

Fimmtudagur 21.04

motivation-380x208

Ég á skrefamæli með púlsmæli, Fitbit Charge HRog hef tekið eftir sl 2 hleðslur hvað púlsinn er hraður alla hleðsluna.  Kolvetnin hlaðast í kroppinn og púlsinn rýkur upp.  Af hverju tók maður aldrei eftir þessu fyrr ?  Kannski var þetta bara orðinn vani……
Ef þú átt púlsmæli þá hvet ég til að tékka á þessu :)

Svefn frá kl
0100-0830

Fastan
1 x kaffibolli með rjóma, 1 x kaffibolli með kókosolíu

 Kl 1100
1 x ristaðan ostaklatta með smjöri, skinku og osti

Kl 1445
Ostabeikonsnakk

Kvöldmatur
IMG_20160421_204330
Fajitas kjúklingur
og
hvítlauks parmesan brokkolí

Magnecium í vatni fyrir svefn

Vatnsdrykkjan fór í 2,6 lítra

Hleðsla 2

2105922ab5faca4defdb1e40561c0100

Jæja, hleðsludagur 2 í dag.
Hann er degi fyrr en hann hefði átt að vera, ég er að fara í stórt tattoo og við ætlum að fara með strákana út að borða og í bíó í kvöld…..þá er nú skemmtilegra að geta fengið sér popp ;)
Frá síðustu hleðslu (14.04) er staðan svona:
12987182_10208232824991032_2912251977259042032_n

Svefn frá kl
2240-0620

 Fastan
2 x kaffi með rjóma

kl 0845
2 x ostaklattar með skinku-eggja-aspas salati

Ég fór í tattoo kl 11 og borðaði eftir það kl 15
1 skinku/ostarúllu og 1 ostaklatta með smjöri og osti

Svo var hleðsla eftir kl 17
Fékk með poppkex með súkkulaðismjöri til að starta henni.
Fórum svo með strákana á American Style og þar fékk ég mér ostborgara með frönskum og gosglas.  Borðaði ekki toppinn af brauðinu.
Svo um kvöldið fórum við í bíó og ég fékk mér gosglas, miðstærð af poppi sem ég kláraði ekki og lakkrísreimar sem ég kláraði ekki heldur.

Nectar prótein í vatni fyrir svefn.

Þriðjudagur 19.04

10474754_10152619649447296_1670541431131056494_n-705x335

Jæja :)  Öllu eðlilega hefði þetta verið fyrri dagvaktin, en ég tók mér frí á morgun og er þvi komin í frí kl 16 í dag ! :) :)
Tók með mér nesti í vinnuna, ég sem var búin að mikla þetta svo fyrir mér áður en ég byrjaði en þetta er svoooo lítið mál :) :)

Svefn frá kl
0030-0615

Fastan
2 x kaffi með rjóma

Kl 0930
1 x kaffishake
(kaffi, cappuccino nectar protein, ísmolar, vatn og rjómi)

kl 1300
2 x ostaklattar með heimsins besta túnfisksalati sem eiginmaðurinn býr til :)

Kl 1645
Kom heim með salat disk úr vinnunni og nartaði aðeins í hann.
Salat, græn paprika, gúrka, 1 harðsoðið egg, fetaostur.

 Kl 2030
IMG_20160419_203329
2 x fiskiklattar með ofnsteiktu blómkáli og brokkolí með cheddarostasósu :)

Vatnsdrykkjan fór í 2,1 lítra.

Mánudagur 18.04

healthy-lifestyle-quotes-tumblr-tumblr-mx317nigd31s9da1lo1-500

Jæja, vinnusyrpan hálfnuð og líður að næstu hleðslu.
Líðanin er góð so far, og þetta gengur vel :)

Svefn
0045-0930

Fastan
2 x kaffibollar með rjóma

 Kl 1200
IMG_20160418_121620
2 x ostaklattar, 1 með smjöri og osti og hinn með túnfisksalati
3 x eve vítamín, 1 x cla

Seinnipartur
Kæfubiti + kaffibolli

Kvöldamatur á kvöldvakt
IMG_20160418_123942
Tók með mér nesti…..þverskar kjúklingabringu, skar í hana vasa og fyllti með fetaosti.
Vafði svo beikoni utan um :)
Nappaði mér svo brokkolí úr mötuneytinu :)

Vatnsdrykkjan fór í 2,5 lítra.

Sunnudagur 17.04

tumblr_m95fj6zeah1ro6sw8o1_500

Þetta er soldið svoleiðis, ég er ekki í megrun, ég er að breyta um lífsstíl og ætla mér að hafa hann til frambúðar :)
Mér finnst svo skondið að fólk fettir nefið yfir því að maður sleppi kartöflum eða borði ekki brauð eða pasta og vandi valið á því sem maður setji ofan í sig, á meðan sama fólkið sagði ekkert við því ef maður fékk sér franskar og sveittan borgara eða var með kók alltaf.
En ég skal sko sýna þeim ;)
Ég ætla að borða mig í betri kropp :)

Ég var á hoppi í dag, sem þýðir næturvakt og svo kvöldvakt 8 tímum seinna.

Kl 0315 (næturmötuneyti)
2 x ostarúllur með spægipylsu
1 harðsoðið egg

Kl 0630
IMG_20160417_062815
½ kjarnhreinsuð gúrka með laxa- og rækjusalati

Svefn frá 0845-1330

Fastan
2 x kaffi með rjóma

 Kl 1640 (kvöldvakt)
2 bitar af ostahrökkkexi með laxa- og rækjusalati

 Kl 1900
LKL salat frá Serrano

Kvöldsnarl
Harðfiskur og smjör

Vatnsdrykkjan fór í 2,8 lítra :)