Þriðjudagur 24.05

Set-a-goal-make-a-plan-get-to-work-stick-to-it-reach-a-goal

Þetta spænist áfram…….7. dagurinn í hreinsun í dag :)
Við ætlum að lengja þessa hreinsun og taka hleðslu á sunnudaginn, þá á 12. degi.

Svefn frá kl
0030-1000

Fastan
2 x kaffi með rjóma

Kl 1200
Eggjahræra og beikon
Eggjahræran útbúin úr 2 eggjum, smá rjómaslettu og kryddi, smá kókosolía á pönnuna og 4 krydd javarti ostasneiðar bræddar með.

Kl 1600
1 x ostaneið með 98% skinku upprúllað
5 braselíuhnetur (ca 15 gr)

Kl 1945
IMG_20160524_195052.jpg
Grísapanna
með blómkáli og hvítlaukssósu….herbamare jurtasalt yfir allt :)

 Kl 2250
Strawberry-kiwi nectar prótein í vatni með rjóma

Vatnsdrykkjan var í 2,3 lítrum

Mánudagur 23.05

11797338276_8395f12fdb_b

Jæja, þetta smá potast :)
Borðaði ekki mikið í dag en leið vel og var södd í bumbunni :)

Svefn frá kl
0030-0630

Fastan
2 x kaffi með rjóma

Kl 0830
13263810_10208472544903880_9223219147928417996_n
Heitur chia grautur með smjöri, eggi og rjóma

Kl 09 fór ég með vaktinni minni á slökkviðliðsæfingu.
Heit reykköfun á dagskránni en þar sem ég er nýkomin úr tattoo þá ákvað ég að standa til hliðar og fylgjast með ;)
Vörum búin um kl 13 og á þessum tíma drakk ég vatn og borðaði örugglega hálda dollu af eldstöfum.

Eftir æfinguna var ég að krókna úr kulda þannig að ég lagðist undir sæng og sofnaði !
Svaf í örugglega 1½ tíma.
Þá var stutt í kvöldmat þannig að ég fékk mér bara kaffi með rjóma.

Kvöldmatur
Afgangur af lærinu síðan í gær, í sósuni og  með soðnu brokkolí

 Lauk kvöldinu með harðfiski og smjöri :)

Vatnsdrykkjan fór í 2,4 lítra

Sunnudagur 22.05

you-dont-need-to-be-perfect-to-inspire-wilson-kanadi

Það er nefnilega soldið svoleiðis……
Ég hef fengið fullt af skilaboðum á Facebook þar sem ég er beðin um ráð með Carb Nite, hvernig þetta virki og hvort þetta sé í lagi o.s.frv.
Ég er engin snillingur í þessu, og á það til eins og aðrir að fara útaf „beinu brautinni“
þó ég viti vel hvaða áhrif það hafi á mig.
Bara núna um daginn tókum við langa hleðslu og erum núna í annari hreinsun vegna þess.
Við hefðum verið að hlaða í gær hefðum við ekki sukkað ;)
Engin er fullkominn……en það er hvernig þú dílar við það sem skilgreinir þig pínu :)
Ef þú ert að byrja á Carb nite þá ráðlegg ég þér þetta…..
Spyrðu um hlutina ÁÐUR en þú framkvæmir…….
Ekki gaman að eiga kannski bara 2-3 daga eftir af hreinsun og skemma hana með því að borða eitthvað sem er alltof hátt í kolvetnum……þannig að spyrðu FYRST ! ;)

Svefn frá kl
0100-0900

Fastan
2 x kaffi með rjóma

Kl 1200
Heitur chia grautur með smjöri, eggi og rjóma

Kl 1500
13267988_10208465521448298_6796950029549028954_n

2 x ostaklattar með smjöri osti, 98% skinku og osti (jebb 2 ostsneiðar)
Grillað í brauðgrilli
2 x eldstafir
Smá pítusósa

Kl 2015 (síðbúinn kvöldmatur)
Lambalæri, rósakál steikt uppúr hvítlaukssmjöri,
og sósa útbúin úr rjóma, piparosti, sveppasmurosti, sveppum og soði af kjötinu

 Kl 2320
10 gr af purusnakki

Vatnsdrykkjan fór í 2,8 lítra.

Laugardagur 21.05

20160422162817366_640_360_1_0
Mikið afskaplega sem það var ljúft að ná að sofa almennilega :)
Dagurinn í dag var MJÖG erfiður í freistingum !
Nammidagur og pylsugrill fyrir utan eina verslun sem ég fór í og meira nammi alls staðar.
EN ÉG STÓÐST ÞAÐ !
Ég, strákarnir mínir og frænka okkar fórum í borgarferð, fórum í Kolaportið og keyptum helling af purusnakki :)
Flott snakkið þar :)

Svefn frá kl
2315-0900

Fastan
1 x kaffi með rjóma

Kl 1115
2x ostaklattar með smjöri, 98% skinku og osti

Kl 1330
Vorum þarna á Grillhúsinu á Sprengisandi.
200 gr piparsteik, bernaise sósa, strengjabaunir og salat.
Bað um að kartöflunni yrði skipt út fyrir salat og komst að því að maður þarf greinilega að biðja um að það sé engin dressing á salatinu, því það var löðrandi í einhverri sætri dressingu :/
Sleppti því að borða það og lét mér nægja salatið sem var á disknum og var ódressað.

 Kl 1930
Kjúklingabringa, fyllt með 2 sneiðum af krydd havarti osti og beikonvafin.
Blómkáls- og brokkólí stappa.
Mexíkóostarjómasósa

 Kvöldkaffi
Harðfiskur og smjör

Vatnsdrykkjan var í 2 lítrum

Föstudagur 20.05

10474754_10152619649447296_1670541431131056494_n-705x335

Dagur 3 í hreinsun…..
Dagvakt í vinnunni í dag og svo frí :)

Svefn frá kl
2330-0620

Fastan
2 x kaffibollar með rjóma

Kl 0930
Heitur chia grautur með salti, karamellu sykurlausu Torani sírópi og rjóma

Hádegið í vinnunni
Það var kjúklingur í karrý með grjónum i matinn, en ég henti grjónunum og skolaði sósuna af kjúllanum !
Brokkolí, gúrka, salat, fetaostur með.

Kl 1430
2 x ostaklattar með smjöri og osti
1 x eldstafur

 Kl 2030
½ eggjakaka sem var útbúin úr
3 eggjum
Rjómaslettu
Season all kryddi
Gratínosti
Beikonteningum

Vatnsdrykkjan fór í 2,2 lítra.

Hreinsun 2, dagur 2

Day-2-blog-image

Fyrri dagvakt í vinnunni í dag, sem þýddi að ég svaf frekar lítið……maður spænir heim og sefur hratt ;)
Var mjög ánægð með gærdaginn……fór í 4 tíma tattoo session, borðaði vel áður en ég fór, drakk vatn og kaffi á meðan og fékk mér svo að borða á eftir og var bara góð :)

Svefn frá kl
0100-0630

Fastan
3 x kaffi með rjómaslettu

Kl 0945
Heitur chia grautur með rjóma og kanil
Ca 15 gr chia í dl af vatni, hitað í örbylgjunni í 1½ mín (ekki eldavél í vinnunni)
3 msk rjómi og dass af hreinum kanil
Vítamínin…..Eve, husk, CLA og magnecium citrate

 Hádegið í vinnunni
Tók með mér kjúklingabringu og hvítlaukssósu (50 gr)
og fékk grænmeti í mötuneytinu.
Kál, gúrkur, 2 kirsuberjatómatar og hellingur af fetaosti.

Kl 1500
1 x ostaklatti með smjöri og osti
2 x eldstafi (salami sticks)

Kvöldmatur
Hakkpanna, salat með fetaosti, blómkál/brokkolí
(hakk, paprika, vorlaukur, sveppir, laukur, texmex smurostur, smá rjómasletta)

Kl 2315
Strawberrie mousse nectar í vatni og rjóma

Vatnsdrykkjan fór í 2,2 lítra

Hreinsun 2, dagur 1

685b2043211358f2e4f4feb3bdc1a1df

Jæja, þá er þessari pásu lokið og ný hreinsun hafin.
Við ætlum að taka fulla hreinsun aftur, það er hægt að stytta hana í 6½ dag EF 9½ dagur hefur verið tekinn áður og með því að gera hiit æfingar fyrst 3-4 dagana.
Þegar ég vigtaði mig sl föstudag, að morgni hleðsludags, þá hafði ég þyngst um 700 gr síðan síðast.  Ég skrifaði það alfarið á slæman svefn og mikið tilfinningalegt álag.
Í morgun var ég 300 gr þyngri en það, eftir tæplega viku hleðslu.
Eiginmaðurinn græddi um kíló á þessu sukki.
Þannig að núna er blaðinu snúið við aftur og allt sett á fullt :)

Við fórum á fyrirlestur í gær hjá Sibbu og Edda Arndal og ég mæli svoooo mikið með að þið farið á svoleiðis.  Sá í gærkvöldi var reyndar sá síðasti fyrir sumarfrí en tékkið á þessu í haust.

Svefn frá kl 0100-0600

Fastan
2 x kaffi með rjóma

Kl 0900
Heitur chia grautur með salti, karamellusírópi og rjóma
(1 dl vatn, 1 msk chia, ½ dl rjómi, ca tsk af sírópi, nokkur saltkorn)
Vítamínin….Eve, CLA, Husk og magnecium citrate

 Kl 1040
1 x ostaklatti með smjöri og 36% osti

Kl 1615
1 x ostaklatti með smjöri og hamborgarhryggsáleggi

 Kl 1900 (mötuneytið í vinnunni)
Lambakjöt (hálfgert súpukjöt)
smá salat og brokkolí
MCT olía í kaffi eftir mat

 Kl 2200
Harðfiskur með smá smjöri

Vatnsdrykkjan fór í 2,5 lítra i dag.

Fimmtudagur 12.05

tumblr_inline_mrqsliKU5N1qz4rgp

Jæja ljúfur og ljúflingar :)
Ég var orðin svo þreytt í gærkvöldi að ég kom mér ekki í bælið !
Sat hérna frammi í stofu eins og zombie þangað til ég lufsaðist í bælið rúmlega hálf 1.
Það er stundum erfitt að vinna upp svefnskuld ;)

Svefn frá kl 0040-0945

Fastan
2 x kaffi með rjóma

 Kl 1200
Heitur chia grautur með salti, rjóma og vanillu sírópi

Kl 1530
Boost
Avocado, spínat, strawberrie/kiwi nectar, mct olía og vatn

Kl 2030
Ofnsteiktar lambasneiðar með smjörsteiktu blómkáli og brokkolí, svepparjómasósu og fersku salati með feta.

 Núna í kvöld ákváðum við hjónin að setja pásu á CN fram yfir helgina.
Kistulagning, jarðarför, afmæli, eurovision….
Ný hreinsun á mánudaginn.
Ætla samt að takmarka neyslu kolvetna við seinnipart eða kvöld, þetta verður ekkert stanslaust gúff alla helgina :)

Hafið það endalaust gott á meðan :)

Miðvikudagur 11.05

20160428151711679_640_360_1_0

Hey gettu hvað !
Þegar þetta er skrifað (kl 0132) þá er ég á aukavakt í vinnunni !
Mér finnst ég hafa gert það áður hahaha :)

Það sem ég borðaði í dag var:

Kl 0100
Kaldur chia grautur með rjóma
(1 msk chia útí 1 dl af vatni….slatta af rjóma með og kanill)

Kl 0820 (fyrir svefn)
Nectar prótein í vatni og rjóma

Svefn frá kl
0925-1200

Þurfti að vesenast og fór áður en ég gat fengið mér að borða……og tafðist svo þannig að ég borðaði ekki fyrr en seinnipartinn :/

Kl 1640
IMG_20160511_165534

Beikonbitar, egg, gúrka og eldstafur (salami stick)

Kl 2015
IMG_20160511_204356_resized
Þetta var tilraun hjá okkur ;)
Kjúklinganaggar
(kjúllabringa skorin í bita, velt uppúr eggjahræru og svo möndlumjöli og bakað í ofni)
Varð mjög bragðgott en möndlumjölið mjög þurrt.
Smjörsteikt blómkál, brokkolí og hvítkál og heimagerð kokteilsósa
(mæjó, felix tómatsósa, pínu sinnep og krydd)

 Nectar prótein í vatni með rjóma fyrir svefn
2 x magnecium citrate

Vatnsdrykkjan fór í 2,4 lítra.

Þriðjudagur 10.05

0d68a856030e4510d5468d00b916c075

Jæja, þessu er alveg að ljúka !
Seinni dagvakt í dag, svo heim að sofa hratt og mæta á aukavakt á miðnætti og svo frí !
Hef oft verið ferskari heldur en í morgun hahaha :)
Það er frekar erfitt að preppa sig matarlega séð þegar maður er að vinna svona mikið auka…en það er bara að gera það besta úr því sem maður hefur :)

Svefn frá kl
0100-0610

Fastan
3 x kaffi með rjóma

Kl 0930
Kaffiboost
(kaffi, klaki, cappuccino nectar, vatn og rjómi)

 Hádegi í mötuneytinu
Það voru grísasneiðar í matinn…..þær voru í raspi en ég skóf af þeim og held að ég hafi verið með kíló af raspi í vaskinum þegar ég var búin að skafa !
Helling af grænmeti og fetaost með.

Seinnipartur
1 x osta/skinkurúlla
1 avocado með salti

Kom heim og svaf frá kl
18-2140

Fasta svo í 2 tíma og borða eftir að ég mæti í vinnuna á eftir.

Vatnsdrykkja dagsins fór í 2,8 lítra.